Fríða
13.09.2006 00:11:19 / fridadis

hæjj

jæja lömbin mín ég er ekki alveg að nenna þessu bloggi orðið frekar leiðinlegt skomm en það er bara mjög gott að frétta ég og Gústi minn ;) erum búin að kaupa okkur bíl loksins loksins vííí :haha: og svo erum við kannski að fara að flytja út saman rosa spennó 8| ég er búin að flytja um vinnustað fór úr hamraborginni yfir í austurver og er orðin vaktstjóri þar aldeilis munur :) en það fer alleg að styttast í afmælið mitt úfff veit ekki hvað ég á að gera á afmælinu mér langar alveg rosalega að halda eikkað brjálað partý þótt að þetta sé nú ekkert merkilegt afmæli enn ég sé til, ég er að pæla í að fara að lúlla heyrumst bleeeeeee

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 00:59:03 / fridadis

komnar myndir

jahá það eru sko komnar myndir frá spáni mögnuð ferð.
                                                skemmtið ykkur :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 00:09:12 / fridadis

hæhæ

hæbb það er allt svona ágætt að frétta af mér ég er búin að vera veik og ekkert geta mætt í vinnu frá því að ég kom heim frá spáni, það er haldið að ég hafi fengið matareitrun en það kemur í ljós úr rannsóknum á föstudaginn :S heimalæknirinn minn mælti með í gær að ég ætti að fara á spítala og vera þar yfir nótt en ég vildi það ekki afþví að ég er svo sterk og ég harkaði þetta bara af mér hehehe :lol: djók ég þorði ekki að fara á spítala er eikkað hrædd við þá :| en ég er öll að hressast held ég. Spánarferðin var alleg mögnuð  æðislegur hópur og allir mjög hressir og fullir hehehe ég var reyndar mjög dugleg var ekki alltaf full tók nokkur kvöld í rólegheit ;) það var fínt en þetta var of stutt ferð næst förum við í mánuð byrjum bara að safna núna er það ekki... :D en jæja ég er farinn að horfa á TV heyrumst bleeeeeeeeeee....:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 12:37:06 / fridadis

hæbb

hef ekki mikið að seigja ég er komin heim frá spáni og það sökkar :cry:

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 17:45:57 / fridadis

haaaaaaalo

hey hvad er ad fretta af islandi er uti a spani og langar ekkert ad koma heim hehhee tad er buid ad vera svo gaman allur hopurin saman hehehehe allir bunir ad vera fullir allan timan og alltaf diskotek vuuuu vorum i tivoli i gaer svaka fjor. Forum lika a spittbat sem var 350 hestafla 8| eg var svo ogillega hraedd ad eg for ad grata :^) og allir ad hugga mig en svo var etta allt i lagi tegar vid komum a land skalf bara sma en tad lagadist :haha: hhehe en jaeja erum farin ut ad borda heyrumst sidar bleeeeeeeee

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 01:28:14 / fridadis

jjjiii dúddilíus

hvað haldið þið... er mín ekki bara að fara í viðskiptaháskólan á bifröst og er að fara í diplómanám í veslunarstjórnun hahahaha jájá en þetta er bara fjarnám þarf bara að fara 3 helgar þangað upp í skóla það er bara kúl þetta tekur 2 ár og ég er bara doldið spennt skohh, en mér langaði bara svona að deila þessu með ykkur :haha: ég er bara heima lasin ógillega mikill kjúklingur :cry: en ég er geeeeeeegt spennt ekki núna næstu helgi heldur þarnæstu helgi þá verð ég bara úti í new york úllalla babee að vesla þokkalega mikið íííííí bara gaman en ég verð að fara að sofa heyrumst bleeeeeeee

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 22:23:55 / fridadis

:P

hæmm það er svo brjálað að gera hjá mér að ég hef ekkert tíma til að blogga híhí :lol: en ég er búin að vera í prófum og seinasta prófið er á morgun ííííí :haha: mér er búið að ganga bara svona ágætlega nema í daggreyðslu prófinu, hárblásarinn bræddi úr sér 8| og hárið brann þannig að ég fæ sennilega góðan mínus fyrir það :S svo er ég bara búin að vera að vinna og skúra þennan blessaða leikskóla arrrg hatann svo er ég bara alleg að fara út til úglanda og ég get ekki beðið ég er með svona kítl í maganum híhíhí hey já frænka mín var að gefa mér 3 kálfa hehehe ógillega sætir þeir heita Elena, Angela og Bianca svo er ég líka að fá kanínu hún er líka ógó sæt en hún er svo ogguponsulítil að ég fæ hana ekki fyrr en eftir 2 vikur þannig að núna á ég kött, hálfan hund hahaha 2 hesta 3 kálfa og eina kanínu ekki slæmt hmm en jæja ég ætla núna að fara að teikna klippinguna sem ég ætla að gera í prófinu á morgun heyrumst bleeeee ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 04:39:21 / fridadis

okei þá

Hæmm jæja ég er að pæla í að blogga smá, það er búið að gerast ansi margt hjá mér til dæmis var árshátíð kaupás 1. apríl  það var geggjað stuð við stelpurnar (ég, Thelma, Katrín, Dagný, Díana, Karen og Helga) tókum limmó á árshátíðina voða fínar á því  skohh hehe :haha: paparnir voru að spila og Dúddi og Kristján 8) voru alveg að meika það á dansgólfinu og  Einar Helgi var að meika það á barnum hahahaha :lol: takk fyrir mig ;) svo um 3 leitð hélt ég af stað heim með bros :D á vör og vaknaði á sunnudaginn eins og það hefði verið keyrt yfir mig: cry: en þetta var ógó gaman ég get ekki beðið þar til að staffadjammið verður víííí :haha: en svo var ammæli á blásteini laugardaginn 8 apríl afmælisbörnin voru Ragga skvísa og Siggi þar var svaka stuð þar allir vel ölvaðir og ég get svo svarið það ég held að ég hafi verið vest, ég gat varla staðið í lappirnar þurfti að hlaupa svona 6 sinnum út til að fá mér frískt loft svo klukkan 2 þurfti mín sko að fara heim í rúmið, sikk sakkaði heim með brjálaðan hikksta, 8| vaknaði síðan á sunnudaginn svo veik að ég gat ekki staðið ég var að liggja í rúminu allan daginn en á mánudaginn fór ég og Dagný austur það var rosaleg fínt að komast aðeins í sveitina og slaka smá á, annars er ég búin að vera að vinna svoldið mikið en ekkert til að kvarta yfir en jæja það styttist í það að ég er að fara skella mér til útlanda get ekki beðið fyrst til usa og svo til costa del sol vííí gaman gaman hehe :lol: en nenni eiginlega að skrifa meir sjáumst bara  bleeeee :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 02:44:12 / fridadis

jahérna hér

Fjögur störf sem ég hef unnið yfir æfina:  

1.Rúmfatalagerin

2.Lurkur

3.Hagkaup 

4.Nóatún 

--------------------------------------------------------------------

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur: 

1.white chicks 

2.Svampur Sveinsson :D

3.home alone 

4.reyndar get ég horft á allt aftur ooooog aftur 

-------------------------------------------------------------------

Fjórir Staðir sem ég hef búið á:

1.Auðbrekku í Kóp

2.Úthlíð

3.Hraunbæ í árbæ :D 

4.Huldubraut í kóp

-------------------------------------------------------------------

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:  

1.One Tree Hill

2.O.C

3.Friends

4.24

-------------------------------------------------------------------

Síður sem ég skoða daglega: 

1.Þessi síða hér...

2.einkabanki.is

3.síður hjá vinum mínum

4.

------------------------------------------------------------------

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum: 

1.London

2.Danmörk

3.U.S.A

4.Portugal, Mallorca, Kanarí o.f.l

------------------------------------------------------------------

Fjórar bækur sem að ég les oft: 

1.skólabækur

2.

3.

4.

-----------------------------------------------------------------

Fernt matarkyns sem ég held uppá: 

1.Dominos

2.Mcdonalds

3.Jólamatur

4.KFC

----------------------------------------------------------------

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera núna: 

1.úti í sólalöndum á ströndinni mmm...

2.Í rúminu mínu sofandi

3.hjá kallinum mínum

4.Á Portúgal

----------------------------------------------------------------

Fjórir sem að ég skora á að gera þetta eru:
 

1.Karen

2.Díönu

3.Arndís

4.Helgu


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 00:27:32 / fridadis

helgin 18-19 feb

Hæhæ hvernig var helgin hjá ykkur? Mín var alleg rosaleg á föstudaginn þá var ég að vinna til 21:00 fór þá heim til Guðrúnar frænku þar sem ég og Katrín erum með íbúðina hennar í láni, svo er ég og Kata bara eitthvað að chilla og förum að sofa klukkan 5 (ZZZZzzzzz) en svo vakna ég við að það er verið að banka á íbúðina og ég vek Katrín og seigi henni að það sé verið að banka og hún stendur upp og ætlar að opna þá seigi ég við hana að ,,kíktu fyrst í gatið áður enn þú opnar” hahaha gatið já okei allavegana þá þorir Katrín ekki að fara og ég þorði því ekki heldur þannig að ég og Kata láum uppí rúmi með sængina yfir hausnum skjálfandi úr hræðslu wow skohh þúst það var bankað á hurðina klórað í hana og tekið í hana, við ætluðum að fara að hringja í lögguna en þá fórum við að hugsa hvað ef þetta væri einhver af vinum hennar Gúgú þannig að við þorum ekki að svara og ekki heldur að hringja á lögguna þannig að ég hringdi heim í pabba og bað hann um að koma því við vorum vikilega að pæli í að hoppa fram af svölunum því að gaurinn var búin að vera að hamast á hurðinni í hálftíma byrjaði klukkan hálf 7 svo allt í einu hættir bankið svo eftir smá tíma þá hringdi síminn þá var pabbi fyrir utan ég opna fyrir honum þá var gaurin farinn og pabbi fer og leitar um alla blokkina og hann sér að það er búið að brjota upp gluggan í geymslunni og er mjúk dýna undir glugganum en gaurin var farinn og við sko þorðum ekki að vera þarna lengur þannig að við förum með mömmu og pabba heim til mín og steinsofnuðum þar. Á laugardaginn þá vöknuðum við um 2 og fórum eikkað að stússast og Karen með fórum í ríkið og sjoppu að kaupa nammi og svonna svo fórum við að gera okkur til fyrir kvöldið og svo vorum við bara heima hjá Gúgú að horfa á eurovision og það var rosa stuð svo ætluðum við að koma okkur í bæinn vinir hennar Helgu komu að sækja okkur klukkan hálf 3 og ætluðu að skutla okkur í bæinn, en á kringlumýrabrautinni sprakk á dekkinu og þeir reyndu að vera gegt töff að skipta um dekk en kunnu það ekki þeir lyft bílnum upp áður enn þeir losuðu skrúfurnar og huðin var opinn og varadekkið við hurðina og bílinn pompaðist niður og varadekkið festist undir hurðina vá glataðir gaurar en allavegana þá náðum við stelpurnar að stoppa bíl og einn strákur ætlaði að koma og hjálpa okkur svo koma 5 gaurar labbandi til okkar og hjálpuðu okkur líka svo var þetta allt klappað og klárt þannig að við gátum lagt aftur af stað í bæinn, við fórum beint ´+a glaumbar og hittum mikið af fólki og skemmtum okkur gegt vel vorm komin heim um 7 leitið. Á sunnudaginn fór ég, Gústi, Dagný, mamma og pabbi austur til Hildar og co og það var gegt nice að komast aðeins uppí sveit og hitta dúllurnar en svona var helgin hjá mér svaka fjör. Já það eru komnar myndir af helginni. Heyrumst bleeee


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 16:09:46 / fridadis

djamm djamm djamm

Yo ég á frí þessa helgi og mér er alveg farið að kítla í tænnar því að mér langar svo gegt að djamma er einhver að fara að djamma um helgina?

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 00:21:55 / fridadis

jamm jamm og jæja

Jæja þá er marr búin að vera aldeilis latur að blogga það er voðalega lítið og óspennandi að gerast hjá mér bara skóli og vinna reyndar er eitt spennandi að fara að gerast hjá mér í júlí og já líka í júní. Í júní er ég að fara til USA (að versla) og í júlí er ég að fara með vinarhópnum til costa del sol víííí gaman gaman. Hef eiginlega ekkert meira að seigja heyrumst bara bleeeeeee

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 16:26:16 / fridadis

wow

Það eru komnar fullt af myndum það vantar samt úr afmælinu hans Arnórs, Gústi er ekki ennþá búin að ná í myndavélina til hans er bra að bíða eftir henni :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 23:29:33 / fridadis

daddara

Wow hva það er vont veður úti eigum við að ræða þetta eða? Allavegana helgin var bra mjög skemmtileg nema á föstudaginn þá var ég að vinna fór svo bara beint heim og gerði ekki neitt en á laugardaginn fór ég í ammæli til Arnórs og það var ógeðslega gaman fyrst þegar mar kom inn var þetta svoldið vandæðalegt allir sátu bara voða stilltir inní stofu svo þegar mar var komin í bjórin þá var þetta allt í lagi skohh hehehe allir í vinahópnum voru þar og ég er nú ekki búin að sjá flesta svo lengi að það var þvílíkt fjör að hitta alla, vorum þar til svona hálf 2 held ég hóst hóst þá héldu allir leið sína í bæinn fórum öll á solon þar var aldeilis fjör en svo ætlaði Katrín að koma og hitta mig en komst ekki inn þannig að ég, Jónas og Gunni og einhver stelpa sem hékk utan í honum allt kvöldið sennilega nýja kærasta hans hehehe við skelltum okkur þá á Viktor og fengum okkur í glas þar dadara uuu svo hvarf Gunni og gellan og ég hringdi í hann og spurði hvar þau væru þá voru þau bra mætt á hressó þá skokkuðum við þangað og hittum þau fengum okkur í glas og byrjuðum að dansa eins og vitleysingar vá ekkert smá fyndið hvað það er hægt að koma strákum til ég og katrín fórum aðeins að flippa á dansgólfinu allt í einu voru fullt af strákum í kringum okkur úllalla skohh hehehe en við vorum á hressó alveg til lokunar fórum svo fyrir utan amsterdam hittum fleiira fólk þar og ætluðum að kíkja þangað inn en þá kostaði 700 kr mín ný búin að finna 2000 kr á götunni en ætlaði samt ekki að tíma að borga mog inn þarna fyrir hálftíma þá ætlaði þessi elska hann Jónas að borga fyrir mig inn en ég neitaði og þá var þetta orðið gott mér langaði bra mest heim enda vorum við kominn með snjóskafl á hausinn hahahaaha ég hló ekkert smá mikið af því alleg rosa fyndið en svo þegar ég, Katrín og Gústi vorum á leiðinni í röðina þá var ég alleg frosinn og gat ekkert labbað þá hringdi ég bara í múttu mína og hún sókti okkur þegar ég kom heim þá fór ég í ullarsokka og náttbuxurnar mínar og peysu og uppí rúm og steinsofnaði geggjað en á sunnudaginn þá fór ég að vinna klukkan 4 var ekki ennþá búin að jafna mig Dagnú kom og leysti mig af klukkan 6 og ég fór heim erins og algjör ræfill. The end skohhhh :lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 19:35:34 / fridadis

????

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2